Nýtt ár er fullkominn tími til að innleiða góðar venjur, setja heilsuna í forgang og byggja upp betri líðan til lengri tíma. Margir setja sér markmið um hreyfingu, betra mataræði og betri svefn. Aðrir setja fókus á tiltekin verkefni, vinnutengd málefni og þar fram eftir götunum.
Hér á Kírópraktorstöðinni hvetjum við einmitt hvort annað, sem og skjólstæðinga okkar, til þess að setja markmið sem efla heilsuna og auka vellíðan okkar. Með því fyrsta sem við mælum með er að huga að grunninum því án hans verður erfitt að setja okkur önnur markmið. Sem dæmi, ef við finnum til mikilla verkja í stoðkerfinu getur verið erfitt að setja sér markmið um hreyfingu og svefn. Ef hryggsúlan okkar er undir álagi þá er taugakerfið undir álagi og þá getur reynst erfiðara fyrir okkur að vera á fullum afköstum í leik og starfi.
Því er fyrsta venjan sem við mælum með í upphafi árs einföld: Að huga að grunnheilsunni okkar, líkamsstöðu, hryggsúlu og taugakerfi. Og því er fyrsta venjan sem við hvetjum til einfaldlega sú að fara til kírópraktors og tryggja að hryggsúlan, taugakerfið og grunn hreyfifærni sé í lagi.
Með heimsókn til kírópraktors í byrjun árs færðu:
- Yfirsýn yfir stöðu hryggjar og liða
- Mat á líkamsstöðu og hreyfigetu
- Greiningu á spennu, skekkjum, bólgum eða álagi í líkamanum
- Forvarnir gegn verkjum og meiðslum
- Betri grunn að virkri hreyfingu og endurheimt
Þetta er eins og árlegt „heilsutékk“ fyrir stoðkerfið þitt. Með kírópraktískri meðferð náum við svo í mörgum tilvikum að laga það sem þarf að laga og þannig leggja góðan grunn að öðrum heilsutengdum venjum sem við mælum með og eru hér að neðan:
Góð venja: Huga að líkamsstöðu í daglegu lífi
Eftir kírópraktíska skoðun verður oft ljósara hvernig líkaminn vinnur í raun og veru. Smávægilegar breytingar á setustöðu, vinnuaðstöðu og svefnstöðu geta haft gríðarleg áhrif á líðan okkar. Með því að huga að góðri líkamsstöðu getum við aukið vellíðan, sjálfstraust og heilsufar.
Góð venja: Hreyfa sig reglulega – með góðum grunn
Hreyfing er frábær, en hún virkar best þegar líkaminn er í jafnvægi. Ef hryggur eða liðir eru skakkir getur hreyfing aukið álag í stað þess að byggja upp.
Kírópraktísk meðferð getur hjálpað líkamanum að hreyfa sig rétt og þannig gert æfingar öruggari og árangursríkari. Hér á Kírópraktorstöðinni geta kírópraktorar einmitt leiðbeint þér með rétt æfingaprógram og í líkamsræktar aðstöðunni okkar kennum við skjólstæðingum góðar æfingar, sniðnar að þeirra líkama (styrkleikum og annmörkum).
Við hvetjum þig eindregið til þess að setja þér góð markmið varðandi hreyfingu og teygjur því líkamlegur styrkur er grunnur að andlegri og líkamlegri heilsu okkar.
Góð venja: Setja svefninn í forgang
Svefn er, eins og svo oft áður hefur veirð fjallað um, undirstaða heilsu okkar. Með góðum svefn fær líkami okkar og hugur þá hvíld sem þarf til þess að lifa góðu lífi. Hins vegar geta
verkir í baki, mjóbaki, hálsi eða herðum haft bein áhrif á gæði svefns. Þess vegna er mikilvægt að vinna með orsökina, ekki aðeins einkennin, til þess að stuðla að dýpri og betri hvíld. Og það er nákvæmlega það sem kírópraktísk meðferð gengur út á.
Til þess að tryggja góðan nætursvefn er gott að huga vel að rúminu sem við sofum í og koddanum, hafa herbergið kalt og svalt, geyma snjallsíma og önnur tæki utan svefnherbergisins, fara að sofa á sama tíma flest kvöld og vakna á sama tíma flesta morgna.
Góð venja: Borða holla fæðu með einstaka undantekningum.
Holl og næringarrík fæða er ein af grunnstoðum góðrar heilsu. Það sem við setjum inn í líkamann hefur bein áhrif á orku, einbeitingu, bólgur í líkamanum, vöðvauppbyggingu og endurheimt. Þegar markmiðið er betri líðan á nýju ári er mataræðið því lykilatriði.
Holl fæða snýst þó ekki um fullkomnun, heldur jafnvægi. Að borða vel flesta daga vikunnar, en leyfa sér einstaka undantekningar án samviskubits, er bæði raunhæft og heilbrigt. Líkaminn vinnur best þegar hann fær reglulega gott „eldsneyti“, en hugurinn þarf líka sveigjanleika og fjölbreytileika. Borðum því hollt 80-90% en leyfum okkur endrum og eins góðgæti sem gleður okkur og kætir.
Góð venja: Hugleiða, þakklætisdagbók og samvera með fólki
Heilsa snýst ekki aðeins um líkamann – hún byrjar í huganum. Hugleiðsla, þakklætisæfingar og góð samvera með fólki eru einfaldar en afar áhrifaríkar leiðir til að styrkja andlega líðan, draga úr streitu og auka jafnvægi í daglegu lífi.
Hugleiðsla hjálpar okkur að hægja á, tengjast líkamanum og losa spennu sem safnast upp í taugakerfinu. Jafnvel örfáar mínútur á dag geta gert heilmikið.
Þakklætisdagbók er einföld æfing sem hefur djúpstæð áhrif. Með því að skrifa niður 2–3 hluti á dag sem þú ert þakklát/ur fyrir, þjálfar þú hugann í að taka eftir því jákvæða.
Samvera með fólki er síðan ein sterkasta heilsubót sem til er. Mannleg tengsl veita öryggi, gleði og stuðning. Hvort sem það er fjölskylda, vinir, samstarfsfólk eða samfélag, þá hefur gæðatími með öðrum gífurlega jákvæð áhrif á andlega heilsu okkar.
Góð venja: Hlusta á líkamann og vinna forvarnarstarfið
Ein stærsta mýtan er að fólk þurfi að vera með verki til að fara til kírópraktors.
Raunin er sú að besta meðferðin er oft sú sem kemur áður en vandamálin verða alvarleg. Fyrirbyggjandi umönnun er ein sterkasta fjárfesting sem þú getur gert fyrir heilsuna þína.
Allar þær venjur sem við höfum talið upp hér að ofan gera nákvæmlega það. Við hvetjum þig því til þess að huga að svefninum, hreyfa þig, borða holla fæðu, huga að andlegri heilsu og síðast en ekki síst, fara til kírópraktors.
Við vonum að 2026 verði stórkostlegt ár í þínu lífi!