Skip to main content

Höfuðverkur getur haft áhrif á einbeitingu, vinnu og daglega líðan. Þegar verkurinn gerir vart við sig beinist athyglin eðlilega að höfðinu sjálfu. Í sumum tilvikum liggja upptökin þó í hálsinum, þar sem liðir og aðrir vefir hálshryggjarins geta valdið verk sem finnst upp í höfuð.

Þetta kallast hálsupprunninn höfuðverkur (cervicogenic headache). Hann getur fylgt hálsverkjum og stirðleika, en hálsverkur þarf ekki alltaf að vera áberandi.

Hvernig getur verkur í hálsi fundist í höfðinu?

Skýringin liggur í því hvernig taugakerfið vinnur úr verkjaboðum. Boð frá efri hluta hálshryggjarins og boð frá svæðum í höfðinu berast að hluta til inn á sömu úrvinnslusvæði í taugakerfinu. Það getur orðið til þess að verkur frá hálsinum sé skynjaður í höfðinu.

Þetta er dæmi um leiðniverk: staðurinn þar sem við finnum verkinn er annar en sá þar sem hann á upptök sín. Því getur þurft að skoða hálsinn þegar leitað er skýringa á ákveðnu mynstri höfuðverkja.

Hvaða vandamál geta tengst þessu?

Liðir, liðbönd og aðrir verkjanæmir vefir í efri hluta hálshryggjarins geta átt þátt í hálsupprunnum höfuðverk. Einkenni geta meðal annars komið fram eftir áverka, svo sem hálshnykk, út frá spennu og streitu, eða tengst sjúkdómi eða breytingum í hálsinum. Það þarf þó einstaklingsbundið mat til að ákvarða hvaða vefir eða þættir skipta máli hverju sinni.

Hvað getur bent til þess að höfuðverkur tengist hálsinum?

Nokkur einkenni geta gefið vísbendingu:

  • Verkurinn byrjar í hnakka og leiðir fram í höfuðið.
  • Hann er gjarnan sömu megin.
  • Ákveðnar hálshreyfingar kalla fram eða auka kunnuglegan höfuðverk.
  • Hreyfigeta hálsins er skert.

Þessi einkenni nægja þó ekki ein og sér til greiningar, enda geta þau skarast við aðrar tegundir höfuðverkja.

Hálsverkur og höfuðverkur fara ekki alltaf saman af sömu ástæðu

Mikilvægt er að greina hálsupprunninn höfuðverk frá meðal annars mígreni og spennuhöfuðverk. Fólk með mígreni getur til dæmis fundið fyrir stirðleika og verkjum í hálsi sem hluta af mígrenikastinu. Hálsverkurinn sannar því ekki að vandamál í hálshryggnum valdi höfuðverknum.

Hvernig er þetta metið hjá Kírópraktorstöðinni?

Hjá Kírópraktorstöðinni hefst matið á viðtali og ítarlegri líkamsskoðun. Farið er yfir heilsufar, einkenni og daglegt álag, ásamt því að meta líkamsstöðu og líkamsbeitingu. Þannig er byggð upp heildarmynd af aðstæðum hvers og eins.

Þegar höfuðverkur er ástæða heimsóknar skiptir máli að kanna hreyfigetu hálsins og hvort ákveðnar hreyfingar eða álag endurskapi kunnuglegan höfuðverk. Niðurstöðurnar eru metnar í samhengi við sjúkrasöguna til að kanna hvort hálshryggurinn geti átt þátt í einkennunum.

Á stöðinni eru einnig framkvæmdar skannamælingar. Þar er meðal annars mældur breytileiki í hjartslætti (HRV), hitamunur á húð meðfram hryggnum og rafvirkni yfirborðsvöðva í baki (sEMG). Það gefur okkur góða mynd af virkni taugakerfisins, hvort bólgur séu til staðar o.s.fr.

Að skoðun lokinni er metið hvort ástæða sé til röntgenmyndatöku. Myndgreining getur veitt gagnlegar upplýsingar í samræmi við aðra þætti skoðunar.

Hvernig getur kírópraktísk meðferð hjálpað?

Þegar mat bendir til hálsupprunins höfuðverkjar, eða annara takmarkana á hryggsúlu og starfsemi hennar, getur kírópraktísk meðferð, svo sem liðlosun eða liðhreyfingar, ásamt markvissum æfingum og teygjum, hjálpað til við að draga úr tíðni og styrk höfuðverkja hjá einstaklingnum. Æfingar geta meðal annars beinst að hreyfistjórn og úthaldi vöðva sem styðja háls og herðasvæði. Meðferðin þarf að miðast við greiningu, heilsufar og viðbrögð hvers einstaklings.

Hjá Kírópraktorstöðinni er farið yfir niðurstöður fyrstu skoðunar í sérstökum niðurstöðutíma áður en meðferð hefst. Þar eru niðurstöðurnar útskýrðar og næstu skref ákveðin í samráði við viðkomandi.

Hvenær þarf að leita strax aðstoðar?

Skyndilegur og mjög slæmur höfuðverkur þarf brátt læknismat. Hið sama á við ef höfuðverk fylgja máttleysi eða dofi, taltruflanir, sjónmissir, rugl eða hár hiti og hnakkastífleiki. Við slík einkenni á að leita tafarlaust aðstoðar og hringja í 112 þegar þörf er á bráðaviðbrögðum.

Við endurteknum höfuðverk er gagnlegt að fá mat á einkennunum. Ef hálsinn á þátt í verkjunum getur það hjálpað til við að velja meðferð sem tekur mið af upptökum þeirra.