Skip to main content

Sterk og góð líkamsstaða er eitt mikilvægasta atriðið þegar kemur að heilbrigði og vellíðan á efri árum.

Þegar við eldumst breytist líkaminn hægt og rólega. Vöðvamassi minnkar, liðamót verða stífari og jafnvægi getur versnað. Þessar breytingar hafa áhrif á líkamsstöðuna okkar sem aftur hefur svo bein áhrif á hreyfifærni, öndun, meltingu, jafnvægi og almenna líðan.

Það er hins vegar vel hægt að hægja á þessari þróun og styrkja líkamann til þess að viðhalda vöðvamassa, efla liðamót og ná auknu jafnvægi og styrk.

Af hverju skiptir líkamsstaðan svona miklu máli?

Góð líkamsstaða tryggir að hryggurinn sé í sem eðlilegustu jafnvægi. Þá dreifist álag jafnar á liðamót, vöðva og liðbönd. Þegar líkamsstaða er léleg verður óþarfa álag á ákveðna hluta líkamans sem getur valdið:

  • Bak-, háls- og axlarverkjum
  • Minnkuðu jafnvægi og aukinni hættu á meiðslum
  • Skertum hreyfanleika
  • Þreytu og vöðvaspennu
  • Öndunarerfiðleikum vegna samfalls í brjóstkassa
  • Skertu sjálfstrausti og minni virkni í daglegu lífi

Sterk líkamsstaða stuðlar hins vegar að:

  • Betra jafnvægi og stöðugleika
  • Aukinni hreyfigetu
  • Minni verkjum
  • Betri öndun og súrefnisflæði
  • Auknu sjálfstæði
  • Meiri lífsgæðum og öryggi í daglegum athöfnum

Algengar líkamsstöðubreytingar á efri árum

Líkamsstaða okkar breytist með aldrinum en þó mismikið eftir einstaklingum og lífsstíl. Ef við hugum lítið að líkamanum, hreyfum okkur takmarkað, teygjum lítið á og gleymum að veita hryggsúlunni athygli, þá getur líkamsstaðan þróast til hins verra, nánar tilteikið:

  • Höfuðið fellur meira fram sem setur gríðarlegt álag á hryggsúluna
  • Axlir stífna og hallast fram
  • Brjóstbak verður kúptara
  • Mjaðmir stirðna
  • Jafnvægið verður óstöðugra

Með því að huga betur að líkamanum er hægt að hægja á og lágmarka þessar neikvæðu breytingar á líkamsstöðu okkar. 

Hlutverk kírópraktors í bættri líkamsstöðu

Kírópraktísk meðferð snýst ekki aðeins um að lina verki, heldur líka um að bæta hreyfanleika liðamóta og stuðla að betri líkamsstöðu. Með reglulegri meðferð er hægt að:

  • Auka hreyfanleika í hrygg og liðamótum
  • Draga úr vöðvaspennu
  • Bæta líkamsstöðu og líkamsvitund
  • Styðja við betra jafnvægi
  • Auka þægindi í daglegum athöfnum

Á Kírópraktorstöðinni er hver einstaklingur metinn sérstaklega með tilliti til líkamsstöðu, hreyfanleika og líkamlegrar getu. Þær greiningaraðferðir sem við notum til þess að meta einstaklinga eru hita- og taugaskannar, líkamsstöðupróf, hreyfifærnipróf, lífsstílsviðtal og skoðun og síðast en ekki síst tökum við röntgenmynd ef þörf krefur.

Meðferðin sem tekur svo við í framhaldinu er mild, örugg og aðlöguð að þörfum og aldri hvers og eins.

Æfingar og venjur sem styðja við sterka líkamsstöðu

Smáar daglegar venjur geta haft gríðarleg áhrif:

1. Meðvituð líkamsstaða
Standa eða sitja með:

  • Höfuð í beinni línu yfir axlir
  • Axlarblöð létt aftur og niður
  • Brjóstkassa opinn
  • Kviðvöðva virka

2. Léttar styrktaræfingar
Sérstaklega fyrir:

  • Bakvöðva
  • Kvið
  • Rass- og mjaðmavöðva

3. Teygjur
Teygja reglulega:

  • Brjóstvöðva
  • Mjaðmabeygja
  • Háls og axlir
  • Psoas og neðri líkama

4. Göngur og jafnvægisæfingar
Reglulegar göngur styrkja bæði stoðkerfi og taugakerfi. Jafnvægisæfingar, jafnvel mjög einfaldar, geta líka hjálpað.

Líkamsstaða og sjálfsmynd

Það sem oft gleymist er hvernig líkamsstaða tengist sjálfsmynd. Þegar við stöndum upprétt og stöðug:

  • Finnum við fyrir meira öryggi
  • Líður okkur sterkari
  • Eykst sjálfstraust
  • Daglegar athafnir verða auðveldari

Þannig getur sterk líkamsstaða hjálpað okkur að efla andlega heilsu og vellíðan.

Það er aldrei of seint að byrja

Það er aldrei of seint að bæta líkamsstöðu. Líkaminn hefur ótrúlega aðlögunarhæfni, jafnvel á efri árum. Með réttri meðferð, fræðslu og einföldum æfingum er hægt að bæta:

  • Hreyfigetu
  • Jafnvægi
  • Öryggi
  • Orku
  • Lífsgæði

Sterk líkamsstaða er ein mikilvægasta stoðin í heilbrigðu og sjálfstæðu lífi. Hún minnkar verki, eykur jafnvægi, dregur úr meiðslum og styður við betri líðan.
Kírópraktísk meðferð, í bland við hreyfingu og meðvitaða líkamsbeitingu, getur verið öflug leið til að viðhalda styrk, stöðugleika og sjálfstæði á efri árum.

Á Kírópraktorstöðinni leggjum við áherslu á að styðja fólk á öllum aldri við að byggja upp og viðhalda góðri líkamsstöðu, því góð líkamsstaða er grunnurinn að góðri heilsu, á öllum stigum lífsins.