fbpx Skip to main content

Hefur þú upplifað stirða vöðva eftir æfingar, meðan á æfingu stendur eða eftir langvarandi hreyfingarleysi? Ekki nóg með það að stirðir vöðvar leiði til pirrings og sársauka í líkamanum, þá geta þeir einnig leitt til skertrar hreyfigetu og það sem verra er, haldið þér frá því að æfa reglulega. Það að þekkja einkennin og geta komið í veg fyrir stirða vöðva hjálpar þér að halda þér á réttri braut, innan ramma þess æfingaplans sem þú stundar, eða ættir að stunda, í þínu daglega lífi.

Allra jafna eru þrjár ástæður, eða réttara sagt aðstæður, sem geta leitt af sér stirða vöðva; eftir æfingar, meðan á æfingu stendur eða vegna langvarandi hreyfingarleysis og/eða kyrrsetu.

 

Stirðir vöðvar vegna hreyfingarleysis

Þegar um langtíma hreyfingarleysi eða kyrrsetu er að ræða, til dæmis hjá þeim sem sitja við skrifborð lungann úr deginum, geta vöðvar líkamans stirðnað upp vegna takmarkaðrar hreyfingar. Þegar þú situr við skrifborð eru mjaðmirnar beygðar. Þetta setur vöðvahópa sem hvíla framan á mjöðmum, við efri part framlæris-vöðva (psoas og iliopsoas) í stutta stöðu en þá vöðva sem hvíla aftan við mjaðmirnar, svokallaða „glutes“, í lengri stöðu. Auk þess, þegar þú situr við tölvu þar sem þú beygir þig fram, setur þú brjóstvöðva í styttri stöðu á meðan að þú teygir úr og lengir vöðva í efri hluta baksins. Það má auðveldlega sjá, út frá þessari líkamsbeitingu, að með tímanum, verður líkamsstaða þín röng, sökum þess að vöðvar sem hvíla stöðugt í styttri stöðu verða stirðir á meðan að vöðvarnir sem hvíla í lengri stöðu verða veikir og máttlausir. Þegar við lítum í kringum okkur má glöggt sjá þessa þróun hjá fólki almennt, þar sem axlir vísa fram á við og mjaðma- og rassvöðvar hafa hnignað.

 

Stirðir vöðvar meðan á æfingu stendur

Vöðvar geta einnig stirðnað upp meðan á æfingu stendur, til dæmis þegar um vöðvakrampa eða sinadrátt er að ræða. Slíkir krampar geta verið virkilega óþægilegir en orsök þeirra er gjarnan almenn þreyta í vöðvum eða ofreynsla, skortur á vökva, skortur á natríum (e. sodium) í líkamanum sem og skortur á kalín (e. potassium). Þá geta vöðvakrampar einnig átt sér stað utan æfinga. Þegar um krampa er að ræða dragast vöðvaþræðirnir saman sem veldur aukinni spennu í vöðvanum. Þegar krampinn er afstaðinn, slaknar á spennunni og vöðvaþræðirnir ganga tilbaka, hægt og rólega. Hins vegar, meðan á krampanum stendur, er ekki ráðlagt að teygja á vöðvanum en með því ertu í raun að teygja á stuttum og spenntum vöðvaþráðum sem að endingu getur leitt til frekari meiðsla. Leyfðu þess í stað krampanum að ganga yfir áður en þú ferð að teygja á vöðvanum. Til þess að koma í veg fyrir krampa er mikilvægt að nærast vel og drekka fyrir æfingar, meðan á æfingu stendur sem og eftir æfinguna. Þá er aldrei ráðlagt að taka erfiða og langa æfingu ef þú finnur fyrir mikilli þreytu í vöðvum líkamans.

 

Stirðir vöðvar í kjölfar æfingar

Þegar við finnum fyrir stirðum vöðvum eftir æfingar er það oft í formi eymsla og þreytu og getur varað allt frá 24 klst upp í 72 klst. Það geta þó verið mismunandi orsakir fyrir slíkum eymslum en sem dæmi má nefna æfingar þar sem lóðum og þyngdum er lyft hratt upp og látið svo síga rólega niður á við. Það sama gildir um hlaup niður brekkur. Stífleikinn og eymslin í vöðvanum myndast vegna nokkurskonars rofs í vöðvanum sem síðar gengur tilbaka. Þá er hægt að koma alfarið í veg fyrir slíkt með því að auka jafnt og þétt við ákefð æfinganna. Ef þú hins vegar upplifir stirða og stífa vöðva eftir æfingu getur verið gott að reyna að auka blóðflæði til vöðvanna, til dæmis með nuddi. Teygjur hjálpa lítið í þessum tilteknu aðstæðum en þó er mikilvægt að teygja vel eftir æfingar til þess að viðhalda og auka liðleika.

 

Svona getur kírópraktík hjálpað.

Kírópraktík er meðferðarform sem byggir á því að bæta starfsemi stoðkerfisins með því að endurheimta eðlilega virkni í liðum, vöðvum og taugakerfi. Kírópraktorar vinna með aðlögun (e. adjustment) hryggjarliða og annarra liða líkamans til að draga úr spennu, bæta líkamsstöðu og auka hreyfigetu. Kírópraktík getur verið sérstaklega gagnleg í því að meðhöndla og koma í veg fyrir stirða vöðva á eftirfarandi hátt:

Stirðir vöðvar vegna hreyfingarleysis

  • Bætir líkamsstöðu: Langvarandi kyrrseta, eins og nefnt er í greininni, getur valdið röskun á líkamsstöðu sem leiðir til stirðleika og veikleika í ákveðnum vöðvahópum. Kírópraktísk meðferð hjálpar til við að leiðrétta ranga stöðu í hryggnum og mjaðmagrindinni, sem getur létt á spennu í vöðvum og komið í veg fyrir þróun stífleika.
  • Dregur úr spennu í vöðvum: Þegar vöðvar eru stöðugt í styttri eða lengri stöðu, getur það leitt til ójafnvægis í líkamanum. Með því að framkvæma sértækar aðlaganir á hryggjarliðum og mjaðmagrindinni getur kírópraktorinn hjálpað til við að draga úr álagi á þessa vöðvahópa.
  • Eykur blóðflæði og liðleika: Aðlögun á hryggjarliðum stuðla að betri blóðrás og taugaviðbrögðum, sem getur bætt súrefnisflæði til vöðva og aukið hreyfigetu.

Stirðir vöðvar meðan á æfingu stendur

  • Minnkar hættu á krömpum: Með því að auka eðlilega starfsemi í taugakerfinu getur kírópraktík hjálpað til við að bæta samhæfingu vöðva og tauga. Þetta getur dregið úr líkum á vöðvakrömpum og sinadrætti, sem oft eiga rætur sínar að rekja til rangra boða í taugakerfinu.
  • Bætir hreyfivirkni liða: Ef ákveðin liðamót eru stirð eða ekki að hreyfast rétt getur það valdið auknu álagi á vöðvana í kring. Kírópraktík hjálpar til við að leysa þessa spennu, sem getur minnkað líkur á krömpum og stirðleika meðan á æfingum stendur.

Stirðir vöðvar í kjölfar æfingar

  • Flýtir bataferli: Vöðvaeymsli og stirðleiki eftir æfingar tengjast oft bólgum og skertu blóðflæði í vöðvunum. Kírópraktísk aðlögun getur bætt blóðrás og stuðlað að hraðari endurheimt vöðvavefja.
  • Minnkar spennu í vöðvum: Meðferð með kírópraktík getur hjálpað til við að draga úr spennu í þeim vöðvum sem eru aumir eða ofþreyttir eftir æfingar, sem getur bætt líðan og stytt tíma sem líkaminn þarf til að jafna sig.
  • Vinnur gegn langvarandi stífleika: Ef vöðvar verða endurtekið stirðir eftir æfingar getur kírópraktísk meðferð hjálpað til við að finna og leiðrétta undirliggjandi orsakir, svo sem skekkjur í hrygg eða rangstöðu í liðum, sem gætu verið að stuðla að vandanum.

 

Heildrænn ávinningur

Kírópraktík tekur á vanda stirðra vöðva með heildrænum hætti þar sem líkaminn er skoðaður í heild sinni. Auk þess að meðhöndla vandann beint, veita kírópraktorar oft ráðleggingar um rétta líkamsstöðu, æfingar til að styrkja veika vöðvahópa, og teygjur sem draga úr spennu í stífum vöðvum. Með því að samþætta slíka nálgun við reglulega æfinga- og bataáætlun, geta einstaklingar bætt hreyfigetu sína, dregið úr líkum á meiðslum og haldið sér á réttri braut hvað varðar heilsu og vellíðan.

This site is registered on wpml.org as a development site.