Finnur þú fyrir verk þegar þú nærð í eitthvað upp í skáp, ferð í yfirhöfn eða lyftir handleggnum á æfingu? Kannski er öxlin nokkuð góð í hvíld en ákveðin hreyfing kallar strax fram óþægindi. Hjá öðrum trufla verkirnir svefninn eða gera einföld dagleg verkefni erfiðari.
Verkur við að lyfta handleggnum getur átt sér mismunandi orsakir. Oft tengist hann sinum og öðrum mjúkvefjum í kringum axlarliðinn, en stundum þarf að skoða liðinn sjálfan eða hvort einkennin komi frá hálsinum. Skoðun hjálpar til við að greina þar á milli og velja viðeigandi meðferð.
Af hverju verkjar í öxlina þegar handleggurinn fer upp?
Öxlin er samsett úr nokkrum liðum, vöðvum og sinum sem vinna saman þegar við hreyfum handlegginn. Umhverfis axlarliðinn liggur hópur vöðva og sina sem kallast rotator cuff, eða snúningsvöðvar axlar. Þeir hjálpa okkur að lyfta og snúa handleggnum og styðja við stöðugleika liðarins.
Milli sina og axlarhyrnu er slímbelgur sem auðveldar vefjunum að renna hver gegn öðrum. Verði sinarnar eða slímbelgurinn viðkvæm getur álagið við að lyfta handleggnum kallað fram verk. Óþægindin finnast gjarnan framan eða utan á öxlinni og geta leitt niður í upphandlegginn. Sumir finna einnig til þegar þeir lækka handlegginn aftur eða liggja á viðkomandi hlið.
Algengar skýringar á verknum
Sinatengdir axlarverkir
Vandamál í sinum snúningsvöðva eru algeng orsök axlarverkja. Einkennin geta komið smám saman eða gert vart við sig í tengslum við endurteknar lyftur, vinnu með hendur yfir höfði eða íþróttir.
Þú gætir til dæmis fundið fyrir verk þegar þú lyftir handleggnum út til hliðar, nærð upp fyrir þig eða heldur á hlut frá líkamanum. Verkurinn getur verið mismikill eftir því hvernig og hversu mikið þú notar öxlina.
Erting í slímbelg og svokölluð axlarklemma
Hugtakið „axlarklemma“ er oft notað um verki sem koma fram þegar handleggurinn fer upp. Erting í sinum og slímbelg getur átt þátt í slíkum einkennum.
Hugtakið eitt og sér segir þó ekki nákvæmlega hvaða vefur veldur verknum eða hvaða meðferð hentar. Við mat á sinatengdum axlarverkjum þarf að horfa á sjúkrasögu, hreyfigetu og styrk saman, fremur en að byggja niðurstöðuna á einu prófi.
Frosin öxl
Ef öxlin verður sífellt stífari samhliða verknum getur verið um frosna öxl að ræða. Þá þykknar og stífnar liðpokinn utan um axlarliðinn og hreyfigetan skerðist.
Það getur meðal annars orðið erfitt að greiða hárið, fara í yfirhöfn eða ná með höndina aftur fyrir bak. Hreyfingin er takmörkuð bæði þegar þú hreyfir handlegginn sjálf eða sjálfur og þegar annar aðili aðstoðar við hreyfinguna. Frosin öxl getur tekið langan tíma að ganga til baka og því þarf að laga meðferð og væntingar að ástandinu.
Verkur sem kemur frá hálsinum
Stundum liggur skýringin utan axlarinnar. Erting á taugarót í hálsi getur valdið verk sem leiðir út í öxl og handlegg. Þá geta einnig fylgt náladofi, dofi eða minnkaður kraftur.
Þess vegna getur verið mikilvægt að skoða háls og taugastarfsemi samhliða öxlinni, sérstaklega þegar einkennin leiða lengra niður handlegginn.
Hvernig er vandamálið metið?
Við mat á axlarverkjum skiptir máli að skilja hvernig einkennin hófust og hvaða áhrif þau hafa á daglegt líf. Hér á Kírópraktorstöðinni byrja allar meðferðir á ítarlegu heilsufarsviðtali og skoðun. Skoðun getur meðal annars falið í sér að meta:
- Hversu hátt og í hvaða áttir þú getur hreyft handlegginn.
- Muninn á hreyfingu sem þú framkvæmir sjálf eða sjálfur og hreyfingu með aðstoð.
- Styrk og viðbrögð við álagi á axlarvöðva.
- Hvaða hreyfingar kalla fram einkennin.
- Hvort ástæða sé til að skoða háls, skyn, viðbrögð og vöðvakraft nánar.
Niðurstöðurnar eru metnar í samhengi við sjúkrasöguna. Markmiðið er að finna líklega skýringu á einkennunum, meta hvort frekari rannsókna sé þörf og ákveða næstu skref.
Samhliða lífsstílsskoðun og viðtali, framkvæmum við hita- og taugaskanna til þess að meta bólgur og virkni taugakerfisins. Þá er sömuleiðis tekin röntgenmyn ef þörf krefur, til þess að meta ástand hryggsúlunnar og mögulegrar tengingar við axlarverk.
Hvernig getur meðferð hjá kírópraktor hjálpað?
Fyrsta skrefið hjá Kírópraktorstöðinni er að meta einkennin og hvort meðferð hjá kírópraktor eigi við. Meðferðaráætlun þarf að taka mið af niðurstöðum skoðunar, þínum markmiðum og því hvernig öxlin bregst við meðferð hjá kírópraktor. Samhliða kírópraktískri meðferð fá skjólstæðingar ráðleggingar um æfingar og teygjur sem geta hjálpað.
Hægt og rólega geta framfarir birst í því að þú náir auðveldar upp í skáp, sofir betur eða getir smám saman aukið álag í vinnu og æfingum. Ef bati lætur á sér standa þarf að endurmeta ástandið og hvort önnur meðferð eða frekari rannsóknir séu viðeigandi.
Hvað getur þú gert sjálf eða sjálfur strax?
Haltu öxlinni varlega á hreyfingu
Við algengum axlarverkjum án áverka er yfirleitt ráðlagt að halda áfram með rólegar hreyfingar eftir getu. Forðastu að þvinga öxlina í gegnum mikinn verk eða hefja þungar æfingar sem gera einkennin verri.
Ef erfitt er að sofa getur hjálpað að styðja undir handlegginn með kodda og velja svefnstöðu sem minnkar óþægindin.
Aðlagaðu álagið tímabundið
Ef ákveðin verkefni kalla síendurtekið fram verk getur þurft að breyta þeim um tíma. Það getur til dæmis þýtt að létta þyngdir, fækka endurtekningum eða taka fleiri hlé frá vinnu yfir axlarhæð.
Álagsaðlögun þarf að taka mið af einkennunum og því sem þú þarft að geta gert í vinnu og frítíma. Markmiðið er að finna viðráðanlegt álag og byggja síðan getu upp aftur.
Fáðu leiðbeiningar um viðeigandi æfingar
Æfingar eru lykilþáttur í meðferð sinatengdra axlarverkja. Þær geta meðal annars beinst að styrk, hreyfistjórn og auknu álagsþoli. Æfingarnar og framvindan þurfa að miðast við getu þína og viðbrögð við álagi.
Hvenær þarf að leita fljótt aðstoðar?
Leitaðu strax til læknis ef verkurinn er skyndilegur og mikill, sérstaklega eftir fall eða annan áverka, eða ef þú getur ekki hreyft handlegginn. Sama á við ef öxlin aflagast, bólgnar mikið, verður heit og þú færð hita eða finnur fyrir vanlíðan. Viðvarandi dofi eða nýr, greinilegur kraftmissir þarf einnig mat.